Notkunarskilmálar og yfirlýsing um persónuvernd

Velkomin(n) á vipdekk.is Vefurinn er ætlaður til að veita notendum aðgang að upplýsingum er varða vörur og þjónustuframboð vipdekk.

Notkunarskilmálar
Samþykki þessarra notkunarskilmála er forsenda notkunar á vipdekk.is. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Heimilt er að hlaða niður efni vefsins til skoðunar sé það gert til einkanota en ekki til frekari vinnslu. Heimilt er að vísa í síður vefsins á öðrum vefsíðum. Ljósmyndir eða myndbrot á vefnum eru varðar höfundarrétti. Upplýsingar á vefnum eru birtar án skuldbindinga og með fyrirvara um villur.

Við notkun á vefnum er hugsanlega spurt um persónulegar upplýsingar, t.d. við sendingu fyrirspurna. Þessar upplýsingar eru geymdar til að koma þeim áleiðis til viðtakanda og mögulega á meðan á úrvinnslu viðtakanda stendur. Notendur sem vilja ekki að við geymum upplýsingar um þá skulu ekki gefa upp slíkar upplýsingar! Vefurinn notar fótspor (cookies) í margvíslegum tilgangi. Persónulegar upplýsingar eru ekki vistaðar í fótsporum. Nánar er kveðið á um þetta í yfirlýsingu okkar um persónuvernd. Skilmálar þessir geta breyst án fyrirvara en gildandi útgáfa þeirra er ávallt aðgengileg á þessari síðu. Með notkun á vefsíðunni nwesdekk.is samþykkir notandi þessa notkunarskilmála.

Lagalegir fyrirvarar
Upplýsingar á þessum vef eru samkvæmt okkar bestu vitund á hverjum tíma. Þá getum við ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu réttar. Upplýsingar og skoðanir sem fram koma á vefnum geta breytast án fyrirvara.

Við berum ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum er birtast á heimasíðu okkar né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef okkar. Þá berum við ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn um skemmri eða lengri tíma.

Við eigum höfundarrétt á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á þessum vef, nema annað sé tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki okkar þarf til að safna, vinna með, endurbirta upplýsingar sem hér koma fram, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis upplýsingarnar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að safna, vinna með, endurbirta þær, afrita eða dreifa þeim. Viðskiptavinum okkar er þó heimilt að vista þær til sinna einkanota. Vélræn vinnsla, öflun eða skoðun gagnanna af forritum hvers konar er óheimil.

Lagalegur fyrirvari vegna tölvu­póst­sendinga
Upplýsingar sem kom fram í tölvupósti og eftir atvikum viðhengjum, sendum frá netföngum okkar, gætu innihaldið trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og eru eingöngu ætlaðar þeim sem hann er stílaður á. Efni hans og innihald er á ábyrgð þess starfsmanns sem sendir hann ef það tengist ekki starfsemi okkar. Ef tölvupóstsending hefur ranglega borist einhverjum ber að gæta fyllsta trúnaðar, tilkynna sendanda og eyða mótteknum gögnum eins og kveðið er á um í 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.

Yfirlýsing um persónuvernd
Samþykki notkunarskilmála okkar (sem lesa má hér) er forsenda notkunar á þessum vef. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast fótspor (e. cookies) í tölvu notandans. Þessi fótspor eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og greina heimsóknir á vefsíðuna.

Með því að samþykkja þessa skilmála um notkun á fótsporum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:

Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
Lengd innlita gesta
Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
Tegund skráa sem sóttar eru af vefnum
Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður

Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur hafa áhuga á að skoða. Þannig er hægt að aðlaga vefinn betur að þörfum þeirra.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti fótsporum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Upplýsingar um hvernig stilla má vafra má finna á vefsíðu um vafrakökur: allaboutcookies.org.

Markhópagreining
Við notum Google Analytics til að greina notendahópinn okkar í þeim tilgangi að sinna honum betur. Með því að stilla til Google Ads Settings á vef Google getur þú ákveðið að taka ekki þátt í slíkum greiningum. Við notum gögn sem safnað er nafnlaust með Google Analytics til þess að bæta þjónustu okkar. Við leitumst aldrei við að greina hegðun notenda niður á einstaklinga heldur nýtum þessar upplýsingar aðeins í nafnlausum og almennum tilgangi.

Rekstraraðili
V.I.P. dekk og viðhald ehf.
Kt. 530612-3170
Fosshálsi 7
110 Reykjavík

Sími: 571-9111 og 690-9111
Email: vipdekk@internet.is

Félagið er einkahlutafélag sem skráð er í hlutafélagaskrá og er með starfsleyfi frá Sýslumanninum í Reykjavík.